Útivistarreglur
Börn mega ekki vera úti eftir ákveðinn tíma nema í fylgd fullorðinna.
Samkvæmt 92. grein barnaverndarlaga (nr. 80/2002) mega börn 12 ára og yngri ekki vera á almannafæri eftir kl. 20:00 nema í fylgd með fullorðnum. Fyrir börn á aldrinum 13 til 16 ára gildir að þau skulu ekki vera á almannafæri eftir kl. 22:00, nema þau séu á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Frá 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir.
Athugið að aldursmörk miðast við fæðingarár, ekki fæðingardag.
Síðast uppfært 27. febrúar 2025