Beint í efni

Vefur í vinnslu

Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is

Grunnskólar

Akureyrarbær rekur tíu grunnskóla.

Sjö grunnskólar eru á Akureyri, Hlíðarskóli er að Skjaldarvík og í Hrísey er samrekinn leik- og grunnskóli. Grímseyjarskóli er ekki starfandi veturinn 2024-2025.

Grunnskólar í Akureyrarbæ

Skólaval

Samkvæmt skólastefnu og fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar stendur foreldrum til boða að velja í hvaða skóla börn þeirra fara. Hvert barn á þó rétt til skólagöngu í sínum hverfisskóla. Nemendur í Innbæ og Teigahverfi geta litið á Naustaskóla sem sinn hverfisskóla.

Hér má sjá kort yfir skólasvæði Akureyrar. 

Umsókn í grunnskóla.

Gangur í skóla

Að byrja í grunnskóla

Skólaskylda er fyrir öll börn á Íslandi sem náð hafa sex ára aldri eða verða sex ára á árinu. Hjá Akureyrarbæ eru starfræktir níu grunnskólar og á barnið rétt á skólavist í sínum hverfisskóla.

    Skólamáltíðir

    Við alla grunnskólana eru starfrækt skólamötuneyti, þar sem nemendum er boðið upp á heita máltíð í hádegi. Á Akureyri er samræmdur matseðill fyrir alla leik- og grunnskóla. Einnig er hægt að vera í áskrift að mjólk og ávöxtum í nestistíma. Hádegismatur er gjaldfrjáls en greiða þarf fyrir mjólkur- og ávaxta áskrift

      Íslenska sem annað tungumál

      Námsgreinin íslenska sem annað tungumál (ÍSAT) er kennd markvisst í grunnskólum Akureyrarbæjar. Íslenska sem annað mál er einnig kennt markvisst í öllum leikskólum bæjarins.

      Fræðsluvefur fyrir erlenda nemendur, kennara þeirra og foreldra

      Kynningarmyndbönd um grunnskólakerfið á Akureyri á nokkrum tungumálum (opnast á YouTube):

      Skólavistun

      Í skammtímavistun er lengd viðvera fyrir mikið fötluð börn á aldrinum 10-16 ára. Gert er ráð fyrir að allt að 12 fötluð börn geti nýtt sér þjónustuna sem þar er í boði. Markmið þjónustunnar er að veita börnunum öruggt umhverfi að skóladegi loknum þar sem hlúð er að grunnþörfum þeirra með virkri þátttöku barnanna.

        Gagnlegir hlekkir