Beint í efni

Vinnustaðir fyrir fatlað fólk

Fólk með skerta starfsgetu getur fengið stuðning til virkni, vinnu og starfsþjálfunar. Þótt enginn geti allt eru öll verkefni mikilvæg.

  • Skógarlundur

    Skógarlundur miðstöð virkni og hæfingar

    Í Skógarlundi er fólki með langvarandi stuðningþarfir veitt atvinnu - og virknitengd þjónusta sem stuðlar að aukinni hæfni til þátttöku í daglegu lífi til jafns við aðra. Skógarlundur starfar skv. lögum um þjónustu við fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.

    Þroskaþjálfar og aðrir fagmenn stýra starfinu á 9 starfsstöðvum Skógarlundar. Markmiðið er að mæta þörfum hvers einstaklings af virðingu og á heildstæðan hátt.

    Aðsetur: Skógarlundur 1, 600 Akureyri
    Sími: 462-1754
    Skógarlundur er opinn alla daga frá kl. 08.00 – 16.00 en þjónustan er tvískipt, ýmist frá kl. 8.00 – 12.00 og 12.00 – 16.00.

    Sótt er um þjónustu í Skógarlundi á vef Vinnumálastofnunar

  • Plastiðjan bjarg

    Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur (PBI)

    Iðjulundur er vinnustaður fyrir fólk sem vegna fötlunar eða af öðrum ástæðum er með skerta starfsgetu. Þar fer einnig fram starfsþjálfun/starfsendurhæfing og mat á vinnugetu. Sjá heimasíðu PBI.

    PBI starfar skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.

    Aðsetur: Furuvellir 1, 600 Akureyri
    Sími: 414-3780
    Netfang: pbi@akureyri.is
    Opið virka daga til kl: 16:00 nema föstudaga er opið til kl: 12:00.

Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við Velferðarsvið Akureyrarbæjar, Glerárgötu 26, sími 460 1000, velferdarsvid@akureyri.is. Afgreiðslutími er virka daga kl. 9-15.