Stuðningsþjónusta
Aðstoð til að efla sjálfstæði, sjálfræði og lífsgæði heima.
Stuðningsþjónusta felur í sér fjölbreytta aðstoð fyrir einstaklinga, fjölskyldur og heimili. Markmiðið er að valdefla notendur til sjálfbjargar og sjálfræðis, þannig að þeir geti búið sem lengst á eigin heimili með sem mestum lífsgæðum.
Stuðningsþjónusta
- Aðstoð við persónulega umsjá
- Aðstoð við heimilishald
- Félagslegan stuðning
- Aðstoð við umsjá veikra eða fatlaðra barna
- Ráðgjöf iðjuþjálfa
- Heimsendingu matar
- Aðstoð við innkaup og erindrekstur.
Matsteymi velferðarsviðs metur þörf fyrir þjónustu og sér jafnframt um mat á þjónustuþörf fyrir nágrannasveitarfélög samkvæmt samningi.
Stuðningsþjónusta og heimahjúkrun starfrækja saman næturvakt.
Til að sækja um þjónustu er farið í gegnum Þjónustugátt og til þess notuð rafræn skilríki. Aðstoðarmaður getur sótt um fyrir viðkomandi á sínum rafrænum skilríkjum en þá þarf að muna eftir að breyta upplýsingum inni á svæðinu.
Hægt er að fá aðstoð við umsóknir í móttöku velferðarsviðs Akureyrarbæjar.
Þjónustustöðvar
Víðilundur 22
s. 461-1249
Bugðusíða 1
s. 462-6933
Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við Velferðarsvið Akureyrarbæjar, Glerárgötu 26, sími 460 1000, velferdarsvid@akureyri.is. Afgreiðslutími er virka daga kl. 9-15.