Dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar
Bæjarstjórnarfundir eru að jafnaði fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Í júlí og ágúst er yfirleitt fundarhlé hjá bæjarstjórn og hefur bæjarráð þá heimild til fullnaðarafgreiðslu mála. Fundirnir eru haldnir í sal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9 og hefjast kl. 16:00. Upptökur af bæjarstjórnarfundum má finna hér.
Dagskrá bæjarstjórnarfundar 1. apríl:
1. 2024090414 - Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2024
Liður 1 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 10. apríl 2025:
Lagður fram ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2024.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið. Þá sat Þorsteinn Þorsteinsson endurskoðandi hjá KPMG fundinn undir þessum lið.
Bæjarfulltrúinn Halla Björk Reynisdóttir sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundarbúnað.
Bæjarráð vísar ársreikningi Akureyrarbæjar fyrir árið 2024 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
2. 2024021058 - Hlíðarfjall - Stækkun á deiliskipulagi
Liður 5 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 9. apríl 2025:
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hlíðarfjalls sem felst í að skipulagssvæðið stækkar um 8,6 ha til austurs og afmörkuð er lóð með byggingarreit fyrir sleðabraut frá bílastæði norðan Skíðastaða og niður hlíðina til austurs. Auk sleðabrautar er gert ráð fyrir tveimur allt að 30 fm þjónustuhúsum.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hlíðarfjalls verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3. 2024010498 - Fiskitangi - deiliskipulagsbreyting
Liður 8 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 9. apríl 2025:
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis sunnan Glerár. Í breytingunni felst að lóð Fiskitanga 2 stækkar og er þar afmarkaður byggingarreitur fyrir allt að 1.200 fm vélageymslu. Þá breytist afmörkun lóðarinnar Fiskitangi 4 auk þess sem hætt er við breytingar á Hjalteyrargötu.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Er skipulagsfulltrúa falið að óska eftir umsögn umhverfis- og mannvirkjasviðs, Norðurorku, Vegagerðarinnar og lóðarhafa Fiskitanga 2 og 4.
4. 2025040184 - Síðubraut - Deiliskipulagsbreyting vegna smáhýsa
Liður 10 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 9. apríl 2025:
Lögð fram drög að deiliskipulagsbreytingu fyrir Grænhól - athafnasvæði sem felur í sér að deiliskipulagssvæðið stækkar og útbúin er ný lóð fyrir húsnæði fyrir heimilislaust fólk með fjölþættan vanda.
Þar sem umrætt svæði er í aðalskipulagi skilgreint sem íbúðarsvæði leggur skipulagsráð til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5. 2024051689 - Hreinsunarátak í bæjarlandinu
Rætt um hreinsunarátak.
6. 2023010626 - Skýrsla bæjarstjóra
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fer yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 4. og 10. apríl 2025
Bæjarráð 10. apríl 2025
Fræðslu- og lýðheilsuráð 26. mars 2025
Skipulagsráð 9. apríl 2025
Umhverfis- og mannvirkjaráð 1. apríl 2025
Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: hér