Beint í efni

Fjárhagsáætlun

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar er unnin í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Fjárhagsáætlun nær til A-hluta, sem felur í sér rekstur málaflokka og þjónustu við íbúa, og B-hluta, sem inniheldur sjálfstæð fyrirtæki bæjarins og rekstrareiningar sem eru í eigu bæjarins.

Áætlunin byggir á þjóðhagsspá, forsendum Hagstofunnar og spám bankanna. Stefna bæjarstjórnar og umfangsmikil vinna sviðsstjóra, fagráða og bæjarráðs leggja grunninn að lokasamþykkt áætlunarinnar í bæjarstjórn.